Veðrun og rof
Í náttúrunni er alltaf að finna veikleika í bergi og er það mikið á þeim stöðum sem efnið molnar og eyðist. Veðrun er það ferli sem mylur bergið niður og svo eru það roföflin eins og vindur, vatn og jöklar sem flytja það síðan burtu frá upprunastað sínum niður til sjávar þar sem það hleðs upp í lög.