Efnaveðrun
Þegar aflveðrunin hefur sprengt berg og skilið eftir sig sprungur á efnaveðrun auðveldara með að vinna á berginu. Efnaveðrun er þegar berg grotnar niður vegna virkni efna sem eru í náttúrunni eins og ammoníak, klórsambanda og ýmissa sýra eins og kolsýrunnar sem má finna í regnvatni og grunnvatni. Einnig er aukin loftmengun í heiminum vegna aukinnar losunar koltvísýrings, nituroxíða og brennisteinsoxíða sem gefur frá sér efni til efnaveðrunar.