Aflveðrun
Hitamunur í bergi getur þanið það út og dregið það saman og við þennan hitamun getur ysta lag bergs flagnað af. Dæmi um aflveðrun er þegar frostveðrun og sólsprenging myndast. Frostveðrun verður til þegar vatn kemst inn í sprungur í bergi og frýs þar. Sólsprenging verður til við t.d. snögg hitabrigði þegar brennheit sól kemur eftir kalda nótt.